tag:blogger.com,1999:blog-98111702024-03-13T07:42:42.487+00:00Jónína Ingibjörg SamúelsdóttirJónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.comBlogger245125tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-48065607153436270192009-04-30T11:39:00.003+00:002009-04-30T11:50:11.403+00:00Prjónar og þess háttarSæl

Langt síðan síðast.

Keypti mér prjóna og lopa í gær. Ákvað að rannsaka hvort ég kynni enn að prjóna. Ég kann enn að prjóna. Fitjaði upp á sokkum eða vettlingum (verður ákveðið síðar) og prjónaði nokkrar umferðir. Það var bara gaman. Veit ekki enn hvaða stærð er um að ræða. Sýnist samt að þetta muni verða plagg fyrir ungling eða smávaxinn einstakling. Skiptir engu máli því tilgangurinn er að prjóna.

Vitanlega hefur ýmislegt á daga mína drifið síðan síðast. Fermingarveislur, páskar, tónleikar og stelpugleði.

Sóley bauð mér á tónleika með Eyvöru á Nasa og það var vægast stórkostlegt. Hún er án efa ein af þeim bestu.

Lifið heilJónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-87285779829467079702009-02-09T19:28:00.004+00:002009-02-09T20:14:04.471+00:00Vinveitt yfirtakaSæl

Alveg er það ótrúlegt að þegar mest er að gerast í samfélaginu þá er andinn víðs fjarri.

Mér hefur dottið ótrúlega margt í hug sem færa mætti til bókar en ég gleymi því alltaf jafnharðan. Svona er maður nú orðinn gamall og kalkaður. Ég þyki ekki gömul í dag þegar meðalævi íslenskra kvenna er um 80 ár. Um miðja 19. öld var meðalævi kvenna 38 ár og því væri ég að líkindum dauð eða í besta falli orðin öldruð ef nú væri árið 1850.

Nú eru allir hættir að blogga, eða sko, kannski ekki ALLIR en vissulega MARGIR. Ég hef hugsað mikið um orsökina og allt í einu rann upp fyrir mér ljós:

Snjáldurskinnan hefur tekið völdin!

Datt mér fyrst í hug að um óvinveitta yfirtöku hefði verið að ræða þar sem ýmsir eru eflaust ósáttir við hana. Það verður þó að segjast að yfirtaka samfélags sem byggir á vinasamböndum getur varla talist annað en vinveitt.

Ég veit ekki hvað mér á að finnast um Flettismettið. Að sumu leyti finnst mér þetta mjög sniðugt apparatus en að öðru leyti afar heimskulegt. Sjálfsagt er þetta afar sniðugt kerfi sem stundum er notað á heimskulegan hátt. Það er með þetta eins og svo margt annað að hópsálin nær yfirhöndinni. Allir skulu dregnir í dilka og innstu hjartans mál og tilfinningar opinberaðar. Að auki skal ræða við vinina fyrir allra augum. Mín kaldlynda kynslóð á dulítið erfitt með það. Alveg á sama hátt og hún á erfitt með að setja fram sín hjartans mál á veraldarvefinn í því formi sem gert er hér og nú. Þar með er komin skýring, að hluta til, á ástæðum þess hve lítið er hér skrifað.

Lifið heilJónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com6tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-71617355941535102312009-01-16T13:21:00.002+00:002009-01-16T14:04:16.231+00:00Bannað að hafa jólin á blogginuSkv. Steinu pæju er ekki við hæfi lengur að hafa jólin á blogginu. Eina leiðin út úr þessu er að skapa nýja færslu. Ég er hins vegar svo andlaus (rauðvínslaus kannski) að þetta er ekki auðleyst.

Er búin að lesa Hallgrím, Arnald og Jón Hall. Allt saman fínustu bækur. Arnaldur og Jón Hallur skrifa ágætis krimma og Hallgrímur er fyndinn og háðskur.

Hallgrímur fékk víst miður góða dóma að þessu sinni. Ég er ekki með á hreinu hvað fólst í þessum slæmu dómum (nenni ekki að kynna mér það) en ég skemmti mér hið besta yfir lestri bókarinnar.

Þá var komið að því að dusta rykið af kilju sem ég fékk í bókaklúbbi í haust en hafði ekki gefið mér tíma til að lesa. Mikið assgoti var ég fegin að hafa ekki lesið hana á undan hinum ofantöldu. Þær eru nefnilega þannig að maður klárar eina og byrjar á næstu. Ekkert mál. Þessi, hins vegar, er þannig að maður klárar hana og veit að maður getur ekki lesið aðra bók í bráð.

Þetta er bókin Himnaríki og helvíti eftir Jón Kalman Stefánsson. Ég er orðlaus yfir ágæti þessarar bókar. Eina sem ég get sagt er: Skyldulesning!
Nú get ég bara varla beðið eftir að lesa meira eftir Jón Kalman (já ég veit ég sagðist ekki getað lesið aðra bók í bráð, en það var hvít lygi) og stefni að því að fá mér Sumarljós og svo kemur nóttin, fyrir inneignarnótuna mína hjá Eymundsson.

Talandi um Sumarljós, þá bauð mamma mér í Þjóðleikhúsið að sjá það verk. Við höfðum báðar gaman að. Áður en við fórum var ég hálffúl yfir að hafa ekki verið búin að lesa bókina áður, en nú er ég fegin. Ég er ekki viss um að mér hefði líkað eins vel í leikhúsinu ef ég hefði haft samanburð við bókina. En það kemur í ljós síðar.

Þangað til:
Lifið heilJónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-79043557337936220062009-01-06T10:29:00.002+00:002009-01-06T11:03:49.714+00:00Síðasti dagur jóla
Þrettándinn er kominn. Alltof fljótt. Ég vil hafa jólin áfram aðeins lengur. Hvað ætli ég komist upp með að láta jólatréð standa lengi?Jónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com6tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-37925493470042747132008-12-23T11:16:00.006+00:002008-12-23T11:35:37.515+00:00JólahappdrættiJæja nú er komin Þorláksmessa og nú má fara að skreyta.

Fór í Kringluna í gær. Hugsaði með mér að best væri að fara þangað þar sem það spáði stormi og rigningu. En þar var vont að vera. Margt fólk, hávaði, ég sá ekki neitt og varð bara alveg rugluð. Svo var líka alltof heitt. Rauk út og beint niður á Laugaveg. Þar er alltaf best að vera, ganga í rokinu og rigningunni og kíkja inn í búðirnar. Hressandi! Yndislegt!

Sökum þess hversu rugluð ég er hef ég ákveðið að hafa jólahappdrætti.
Það felst í því að þeir sem fá jólakort þetta árið eru vinningshafar!
Munið samt að jólin standa í þrettán daga og því ekkert útilokað að menn hljóti vinning áður en jólin eru liðin.

Gleðileg jól mínir góðu vinir, vandamenn og aðrir sem kunna að kíkja á þetta.
Hafið það sem allra best um jólin og munið eftir þeim sem minna mega sín.Jónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-60309592162760744172008-12-05T16:15:00.002+00:002008-12-05T16:23:41.398+00:00Allt að gerasteða í það minnsta eitthvað.

Er flutt að Löngulínu 9 í Garðabæ.
Hef sett Lenín út í glugga en á eftir að hengja rauða fánann á svalirnar.

Það er engin smá vinna að koma sér fyrir í nýju húsnæði. Liðin vika hefur öll farið í það og aðeins farið að sjá fyrir endann á því núna. Vonast til að geta ryksugað og þurrkað af í fyrramálið og slappað af eftir það.

Núna þarf ég að drífa mig af stað á tónleika með kórnum hennar mömmu. Hún er greinilega alltaf að hressast meira og meira og spennandi að vita hvað hún tekur sér fyrir hendur næst!

Eigið góða aðventu og munið eftir því mikilvæga!Jónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com12tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-38783791963416816082008-11-18T13:33:00.002+00:002008-11-18T13:42:10.666+00:00Nýjasta tækni og vísindi
Ég hafði skrifað langan og kjarnyrtan texta í póstforrit tölvunnar. Var alveg í ham og pikkaði sem óð væri. Hlutirnir gerðust hratt. Svo hratt að ég geri mér engan veginn grein fyrir hvað gerðist í raun. Trúlega hef ég þrýst á rangan takka en það eina sem ég veit er að það drapst á tölvunni. Þegar ég kveikti á henni aftur var allt farið sem ég hafði skrifað!

Jónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-42072145328296691692008-11-12T10:35:00.002+00:002008-11-12T11:27:57.063+00:00Ef þú færð lán frá öðrum færðu lán hjá okkurHinn alþjóðlegi
Nýjustu fregnir af Alþjóða gjaldeyrissjóðnum herma að við fáum ekki lán frá þeim nema við fáum lán frá öðrum. Hvers lags rugl er það nú? Ég hef ekki hundsvit á þessu en hélt að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn væri einmitt til þess að hjálpa þjóðum í neyð. Þurfum við lán frá þessum auðvaldsherrum ef við getum fengið lán frá vinum okkar og frændum?
Ég held við ættum að leggja allt kapp á að fá aðstoð frá nágranna-, vina- og frændþjóðum og gefa skít í Alþjóða gjaldeyrissjóðinn.

Gunni formaður hinn góði
Gunni formaður VR er ekki á þeim buxunum að iðrast gerða sinna frekar en flestir þeirra sem hafa líf okkar í hendi sér.
Var að lesa afsökunargrein hans í Fréttablaðinu þar sem hann segist hafa haft hagsmuni VR félaga að leiðarljósi þegar hann samþykkti hinar siðlausu ívilnanir til handa stjórnendum Kaupþings.
Því er haldið fram að það hafi aðeins verið tveir kostir í stöðunni, að falla frá persónulegri ábyrgð skuldara eða eiga það á hættu að stjórnendur seldu bréfin sín með alvarlegum afleiðingum.
Af hverju var allt í einu hætta á því þann 25. september að starfsmenn bankans færu unnvörpum að selja öll bréfin sín í bankanum? Af því að þeir væru allt í einu orðnir blankir? Allir í einu?
Nei það var einfaldlega vegna þess að stjórnendur vissu að staða Kaupþings væri slæm og treystu ekki lengur fjárfestingum sínum í bankanum.
Af hverju samþykkti Gunni góði þessa ívilnun?
Af hverju lagði hann ekki til við lífeyrissjóðinn að bréf hans í bankanum yrðu öll seld hvelli og peningunum fyrir komið á verðtryggðum reikningi í einhverjum Sparisjóði?

Markaðurinn
Talsmenn markaðshyggjunnar rökstyðja markaðskerfið með því að markaðurinn sé sjálfbær. Þ.e. að hann lagi sig að aðstæðum án utanaðkomandi inngripa. Gott og vel. Markaður með fyrirtæki þrífst því á upplýsingum. Virði fyrirtækja ræðst því af því verði sem kaupendur og seljendur verða ásáttir um.
Hvernig vita fjárfestar hvaða verð er raunhæft? Jú, þeir byggja það á upplýsingum og vísbendingum. Þeir skoða m.a. ársreikninga, hlutfall framboðs og eftirspurnar og síðast en ekki síst hverjir það eru sem vilja kaupa eða selja. Ef stjórnendur vilja kaupa bréf í fyrirtæki sínu er það vísbending um að þeir hafi trú á fyrirtækinu. Ef stjórnendur vilja selja í fyrirtæki sínu er það vísbending um hið gagnstæða.
Það er alveg rétt sem stjórnarmenn Kaupþings halda fram að ef stjórnendur og aðrir starfsmenn Kaupþings hefðu rokið til og sett bréfin sín á sölu þá hefði það haft alvarlegar afleiðingar. Það hefði nefnilega verið vísbending til annarra fjárfesta um að bankinn væri ekki lengur traustsins verður.
En það er einmitt það sem markaðurinn snýst um, ekki satt?

Það er alveg ótrúlegt að talsmenn markaðshyggjunnar skuli vera fremstir í flokki með að grípa til handvirkra aðgerða sem þeir eru svo mjög á móti og fella gjarnan undir argasta kommúnisma.
Eða er þetta ekki markaðshyggja?
Er þetta kannski bara eiginhagsmunahyggja?
Látum markaðinn ráða meðan hann er okkur í hag!

Af hverju lagði Gunni góði ekki til að bréf Lífeyrissjóðs verslunarmanna yrðu seld og fjármunum sjóðsins komið fyrir á öruggum stað?Jónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-16095525043971202772008-11-02T18:34:00.002+00:002008-11-02T19:02:35.063+00:00Klukkuð af hinum ólíklegasta

Haldið þið ekki bara að elsku litli Drengurinn hafi ekki bara klukkað mömmu sína. Ég þori vitanlega ekki öðru en að bregðast við hið snarasta:

1. Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

Sjálfstætt starfandi barnapía og sendill

SÍF, þar sem lífið var saltfiskur

Kaupfélag Langnesinga, þar sem lífið var... ja þú veist... kuffélagið

Veitingahúsið Perlan, dyravörður (einkennisbúningur og allt!)

2. Fjórar íslenskar bíómyndir sem ég held upp á:

Sódóma Reykjavík

Rotterdam Reykjavík

Astrópía

Englar alheimsins

3. Fjórir staðir sem ég hef búið á:

Vestmannaeyjar

Þórshöfn

Shanghai

Reykjavík

(aukaspurning) 3.a Einn staður sem ég myndi aldrei búa á:

Akureyri

4. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Dýrafjörðurinn fagri

París

Þýskaland

Þórshafnir tvær

5. Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

Desperate housewifes

Breskir sakamálaþættir

Jeeves og Wooster

Black books

6. Fjórar síður sem ég skoða daglega:

drengur.wordpress.com

Baggalutur.is

mbl.is

icanhascheezburger.com

7. Fernt sem ég held upp á matarkyns:

Matur sannra fagmanna

rauðvín

súkkulaði

Mjólk

8. Fjórar bækur sem ég hef oft lesið:

Bílar, flugvélar og öll heimsins furðulegustu farartæki

Nancy og skíðastökkið

Láki

Salka Valka

9. Fjórir staðir sem ég myndi helst vilja vera á núna:

Í Shanghai

Í Tælandi

Á Kúbu

Í París

10. Fjórir bloggarar sem ég klukka (þ.e. þurfa að gefa upp samsvarandi gagnslausar upplýsingar):

Anna óþokki

Sóley Sigmarsdóttir frá Sólheimum í Sæmundarhlíð í Skagafirði

Stína frænka

Þóra frænka

Jónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com6tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-50860361251871436702008-10-25T10:40:00.002+00:002008-10-25T10:41:38.997+00:00Dýrt kveðiðFékk eftirfarandi vísu senda með tölvupósti og nú langar mig að vita hver samdi:

Á lítilli eyju við heimsskautahjara
býr heimakær, vansvefta, auðtrúa þjóð.
Hún leit upp til ráðsmanna loðinna svara
sem loforðum öfugt í kok hennar tróð.

Þeir níddust á trausti og trúgirni okkar
– táldrógu sannlega helvítis til.
Og allt sem þeir gerðu, þeir gordrullusokkar
gerðu þeir flottræflum sínum í vil.

En frelsið er háðara boðum og bönnum
en bláeygðir frjálshugar ímynda sér.
Þjóð mín var notuð af nýríkum mönnum
og nauðgað af útrásarvíkingaher.Jónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-38298909780190310082008-10-09T22:35:00.005+00:002008-10-09T23:07:39.560+00:00Á morgunEkki þarf að tíunda ástandið fyrir fólki. Á hverjum morgni bíða manns nýjar fréttir, síst skárri en fréttirnar sem bárust daginn áður. Kvíðahnúturinn í maganum magnast og maður hugsar með sér að nú geti þetta bara ekki versnað.

Nú eru Bretar komnir í fýlu og ekki útilokað að vakna bara í fyrramálið við breska þjóðsönginn og Shepherds pie.

Hvers vegna ættu þessir herskáu, gömlu nýlenduherrar ekki að vilja hefna harma þorskastríðanna, ná aftur fiskimiðunum, ódýru orkunni og mannauði okkar Frónbúa?

Það er í það minnsta ljóst að annað hvort eru okkar menn að ljúga um samskiptin eða Bretar að stunda þá herkænsku sem þeir hafa jú æft um aldir.

Lifið heil
Live wholeJónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com2tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-31660021839473638262008-09-27T12:30:00.002+00:002008-09-27T12:43:23.551+00:00Merkilegur dagurÍ dag er merkilegur dagur. Merkilegasta dagsetningin í mínu lífi, hingað til og sjálfsagt hér eftir.

Þennan dag fyrir alltof mörgum árum fæddist einkasonurinn.

Jónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-20669783976594079002008-09-07T10:59:00.008+00:002008-09-07T13:15:37.971+00:00JæjaLangt síðan síðast.
Veit ekki hvað veldur.
Leti trúlega.
Ýmislegt hefur á daga mína drifið.
Flutti að heiman.
Bý nú að Byggðavegi í afskaplega notalegri íbúð í tvíbýlishúsi:

Jónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com21tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-34615341437508650562008-07-10T12:19:00.003+00:002008-07-10T12:41:35.379+00:00Skömmin og dropinnNei!
Ég er ekki búin með ritgerðina.
Var að velta því fyrir mér af hverju ég er svona löt að blogga um líf mitt. Ég sem ætlaði að láta þetta blogg vera, meðal annars, hálfgildings dagbók um líf mitt.
Niðurstaðan er skömmin.
Ég skammast mín fyrir að standa mig ekki nógu vel. Ég skammast mín fyrir að hafa ekki drullast til að drífa þessa ritgerð af þegar ég átti að gera það og hafði tækifæri til þess.
Nú er ég hætt að skammast mín. (eða reyna það í það minnsta)
Hverjum kemur þetta eiginlega við?
Mér og engum öðrum.

Ég hef sem sagt setið við skriftir hér í borg óttans undanfarnar vikur og árangurinn verið misjafn. Stundum hefur gengið vel og stundum illa. Þannig gengur þetta fyrir sig.
Ef ég á einhvern tímann að klára þetta verð ég að vera æðrulaus. Ekki sífellt að vera að brjóta mig niður og stressa mig upp með neikvæðum hugsunum um sjálfa mig og þessa ritgerð.
Dropinn holar steininn, sagði Gunna systir við mig einn daginn.

Ég hef komist að því, ekki í fyrsta sinn, að ég er einstaklega heppin með vini og vandamenn. Ég hef fengið að vera hér í friði og ró í yfirgefnum íbúðum ferðaþyrstra vandamanna.
Þakka ykkur fyrir það; Bogga frænka, Biggi, Ósk, Lóa og systkini mín sem alltaf eru tilbúin að taka á móti mér.
Það er ómetanlegt.

Enda þetta krúttkast með viðeigandi kveðju,
knús og kossar!Jónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com11tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-25319548050126031462008-07-04T23:34:00.002+00:002008-07-04T23:39:49.772+00:00MinnisleysiÉg er svo kölkuð að ég gleymdi um hvað ég ætlaði að blogga rétt á meðan ég opnaði bloggdæmið!
Þetta var án efa afar merkilegt blogg.
Ég man það var stutt og laggott en afar merkilegt!
Það getur verið að ég bæti úr ef rætist úr minninu en það er þó engan veginn víst.
Enda engin sem les þetta hvort sem er.
Ég hef að vísu ekki hugmynd um hverjir lesa og hverjir ekki lesa því ég veit ekki til þess að ég sé með einhvern teljara. Gæti þó verið með fínan teljara án þess að hafa hugmynd um það. Enda er mér nokk sama.
Ég meina, ekki er fólk að senda rithöfundum bréf í hvert sinn er það les bók eftir þá?Jónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com5tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-88232624075461290332008-06-27T14:02:00.002+00:002008-06-27T14:26:09.959+00:00BensínverðiðHorfði á Ísland í dag í gær.

Þar sagði Þorfinnur frá Evrópuferð sinni og athugun á bensínverði þar ytra. Það kom í ljós að bensínverðið hér var síst dýrara en í Evrópu. Nema í Luxembúrg þar var það víst örlítið ódýrara en hér á landi.

Ég beið eftir að Þorfinnur gerði einhvern fyrirvara um gengi krónunnar en allt kom fyrir ekki.
Hvað er að marka evrópskt bensínverð í íslenskum krónum?

Ég hefði heldur viljað samanburð á því hversu mikið bensínverðið hefur hækkað þar ytra miðað við hér eða í það minnsta einhverjar vangaveltur um gengi krónunnar í þessu sambandi.

Ein evra er jú langt í frá að vera það sama og hún var fyrir einu ári. Sem dæmi tók Þorfinnur verð á bensíni í Frakklandi: 1,60 evru lítrinn. Á gengi dagsins í dag gerir það 205 íslenskar krónur. Á gengi 27. júní 2007 gerir þetta 135 íslenskar krónur.Jónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-74791965227781866352008-06-19T17:49:00.002+00:002008-06-19T18:08:56.668+00:00SkilningsvanaÞað er margt sem ég skil ekki.

Ég skil ekki alveg ástandið á bönkunum.
Ég skil ekki af hverju ríkisstjórnin þarf að koma til bjargar núna.
Eftir þetta mikla góðæri þar sem allir voru látnir halda að bankarnir hreinlega byggju til beinharða peninga skil ég ekki af hverju þeir eiga ekki neitt í handraðanum til að mæta mótlætinu. Eða hvað? Jú ég held ég skilji það reyndar alveg. Fjöldi fólks var leystur út með gríðarlegum peningagjöfum eftir að hafa, að því er virtist, staðið eitt og sér að velgengni þessara stofnana.

Svo er það þetta með eðlilega verðmyndun á fasteignamarkaði. Hefur verðmyndun á fasteignamarkaði verið eðlileg undanfarin ár? Er mikilvægt að viðhalda þessari eðlilegu verðmyndun? Hverjir hafa hagnast á þessari eðlilegu verðmyndun? Hverjir tapa á henni?
Ég hefði haldið að hóflegt húsnæðisverð væri það besta. Annars þarf auðvitað að horfa á þetta allt í samhengi. Samhengi milli launa og kostnaðar við heimili. Ef verðmyndun á húsnæðismarkaði hefur verið eðlileg undanfarin ár þá hefur verðmyndun á vinnumarkaði verið vægast sagt óeðlileg!Jónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com4tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-15163604007716310052008-06-04T22:20:00.005+00:002008-06-04T22:48:52.808+00:00Svartfugl og önnur glæpasaga tilNú er það Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson sem svæfir mig á kvöldin. Höfundur les með svo róandi röddu að mér dugar sjálfsagt hver lestur í nokkur kvöld. Samt langar mig að fylgjast með sögunni en það er bara svo rosalega gott að sofna undir góðum lestri.

Ég gæti trúlega ekki hlustað á þennan merkilega lestur ef ekki væri fyrir tölvuna og veraldarvefinn því ég get vitanlega ekki með nokkru móti munað eftir því að kveikja á útvarpinu á réttum tíma.

Gulli heilbrigðis var í tíufréttunum áðan að státa sig af afrekum sínum í heilbrigðismálunum. Það er auðvitað ekkert mál að redda öllu með því að skera bara niður hjá þeim sem ólíklegir eru til að berjast fyrir rétti sínum.

Í lögum um málefni aldraðra segir m.a. orðrétt í 14. gr.:

Stofnanir fyrir aldraða samkvæmt lögum þessum eru:
1. Dvalarheimili, sambýli og íbúðir, sérhannað fyrir þarfir aldraðra sem ekki eru færir um að annast heimilishald þrátt fyrir heimaþjónustu. Á stofnunum þessum skal vera varsla allan sólarhringinn, öryggiskerfi í hverri íbúð og völ á fjölbreyttri þjónustu [...]

Á dvalarheimilinu á Djúpavogi má gamla fólkið hringja í tiltekið símanúmer ef það þarf á aðstoð að halda á nóttunni. Er síminn við hendina þegar eitthvað kemur fyrir? Er símanúmerið við hendina? Hvað stendur í 14. gr. laga um málefni aldraðra?

Frétti í dag að eins væri ástatt á elliheimili á Grenivík. Þar er að vísu neyðarhnappur eftir því sem mér skilst. Hvar er neyðarhnappurinn? Er hann á gólfinu þar sem manneskja liggur ef til vill eftir fall eða áfall? Er þessi manneskja með rænu til að nota neyðarhnapp?

Hvað er til ráða?
Jónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com5tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-46753631874180690312008-06-01T09:16:00.003+00:002008-06-01T09:26:02.771+00:00Til hamingju sjómenn
Í dag er sjómannadagurinn. Hann er svipur hjá sjón. Það þarf að hefja hann til vegs og virðingar á ný. Eða eigum við kannski að stofna bankamannadaginn?Jónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-86163045254918234942008-05-07T19:43:00.003+00:002008-05-07T20:55:47.081+00:00Hvað á þetta að þýða?Ég er brjáluð!

Hvernig dettur nokkrum manni það í hug á tuttugustu og fyrstu öldinni að framkvæma hreppaflutninga á gömlu fólki?

Fólki sem er orðið það gamalt og þreytt að það þarf að flytja heimili sitt undir verndarvæng samfélagsins.

Fólki sem hefur átt þátt í því að koma okkur Íslendingum þangað sem við erum í dag.

Honum Herði Högnasyni hjúkrunarforstjóra á Ísafirði dettur það í hug.

Hvaða upplit haldið þið að yrði á Herði Högnasyni hjúkrunarforstjóra ef Gulli ráðherra hjólaði sér vestur til hans, bankaði upp á og segði honum að hann yrði að flytja á Djúpuvík í fjórar vikur í sparnaðarskyni?

Held ég sendi honum Herði Högnasyni hjúkrunarforstjóra mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar, mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna og Mannréttindasáttmála Evrópu.Jónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com6tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-71561069395047657802008-05-06T22:23:00.002+00:002008-05-06T22:24:27.777+00:00Hvar er guð?Jónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-19089832087600802152008-04-07T20:57:00.003+00:002008-04-07T21:00:53.553+00:00Tímanna táknJónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com11tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-70777145636632506362008-04-02T22:17:00.003+00:002008-04-02T22:30:24.288+00:00SakamálHvernig stendur á því að ríkissjónvarpið sendir út breska sakamálaþætti eftir tíufréttir?
Ég hélt það væru bara miðaldra kerlingar sem horfðu á þess háttar þætti. Þær þurfa að fá lúrinn sinn og geta ekki vakað fram undir miðnætti.

Talandi um miðaldra kerlingar þá var ég að staga í fötin mín í kvöld. Það væri nú ekki í frásögur færandi nema fyrir það að ég get með engu móti þrætt nál, svo sjóndöpur er ég orðin. Það var með herkjum að mér tækist það með hjálp sérstaks þræðingarapparats. Öðru vísi mér áður brá!

Það hlýtur að vera erfitt að vera auglýsingamaður og þurfa að koma með nýjar og ferskar hugmyndir látlaust. Mér datt þetta í hug þegar ég opnaði vefgáttina og við mér blasti vísir.is. Sú síða er nú upphafssíða hjá mér þar sem ég lét gabbast þegar mér var lofað dýrindis vinningum að launum. Ekki man ég lengur hvenær átti að draga um vinningshafa né hvar þeir ætluðu að birta nöfnin en engin merki sé ég um það núna að þessi leikur hafi nokkurn tímann átt sér stað.

Góðar stundirJónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-69471270335620271132008-03-26T18:45:00.002+00:002008-03-26T18:52:57.041+00:00Ódýrt blogg
Hrútur: Þú hittir nýtt fólk. Ef þér fellur ekki strax vel við einhvern, snúðu þér þá að næstu manneskju. Þú þarft ekki fimm nýja kunningja. Þú þarfnast gullins vinar.

Mig vantar hvorki vini né kunningja. Ég á nú þegar gullna vini. Svo á ég líka gullna fjölskyldu.

Hvað getur maður beðið um meira?

Jónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com5tag:blogger.com,1999:blog-9811170.post-79025498807803296152008-03-15T14:09:00.001+00:002008-03-15T14:12:02.737+00:00Aldin móðir eðalborna
Þjóðfundarsöngurinn 1851

Aldin móðir eðalborna,
Ísland, konan heiðarlig,
ég í prýðifang þitt forna
fallast læt og kyssi þig,
skrípislæti skapanorna
skulu ei frá þér villa mig.

Þér á brjósti barn þitt liggur,
blóðfjaðrirnar sogið fær;
ég vil svarinn son þinn dyggur
samur vera í dag og gær;
en hver þér amar alls ótryggur,
eitraður visni niður í tær.

Ef synir móður svíkja þjáða,
sverð víkinga mýkra er;
foreyðslunnar bölvan bráða
bylti þeim, sem mýgjar þér;
himininn krefjum heillaráða
og hræðumst ei, þó kosti fjer.

Legg við, faðir, líknareyra,
leið oss einhvern hjálparstig;
en viljirðu ekki orð mín heyra,
eilíf náðin guðdómlig,
mitt skal hróp af heitum dreyra
himininn rjúfa kringum þig.

Móðir vor með fald og feldi
fannhvítum á kroppi sér,
hnigin að ævi kalda kveldi,
karlæg nær og holdlaus er;
grípi hver sitt gjald í eldi,
sem gengur frá að bjarga þér.

Sjáðu, faðir, konu klökkva,
sem kúrir öðrum þjóðum fjær;
dimmir af skuggum dauðans rökkva,
drottinn, til þín hrópum vær:
Líknaðu oss eða láttu sökkva
í leg sitt aftur forna mær!

Hjálmar Jónsson frá BóluJónína Ingibjörghttp://www.blogger.com/profile/15323958123542916070noreply@blogger.com6