Opið bréf (frá kansellíinu) um meðferð á fundnu fé í kaupstöðum
1811 8. júní
Í opnu bréfi 28. september 1767, fyrir Kaupmannahöfn, er ákveðið: að fundnir munir skulu geymdir á skrifstofu lögreglustjóra, og skuli þar bókað, hver fundið hafi hvern hlut og hvar, og það auglýst í blaði og með uppfestri skrifaðri auglýsingu; að þegar eigandinn gefur sig fram og fær hið fundna afhent á skrifstofu lögreglustjóra, skuli hann greiða dálitla þóknun í fundarlaun, eftir verði hlutarins, atvikum og úrskurði lögreglustjóra og auk þess kostnað við birtingu í blaði; og loks að, ef eigandinn kemur eigi innan árs og dags, skuli selja hið fundna handa lögreglusjóðnum, og finnandi þá fá þriðjung þess í fundarlaun. En með allrahæstum úrskurði,
5. júní síðastl., hefir Hans Hátign allramildilegast ákveðið, að fyrirmælin í ofannefndu opnu bréfi, 28. september 1767, skulu eftirleiðis einnig ná til allra annarra kaupstaða í báðum ríkjunum, þó svo, að í þeim kaupstöðum, þar sem engin blöð koma út, skal hinum fundnu munum lýst með uppfestum auglýsingum og bumbuslætti.

7 ummæli:
Mér er það algerlega hulin ráðgáta af hverju þetta kemur svona mislitt :s
Mér finnst það vel við hæfi að þú sért með gamanmál úr lagasafninu reglulega á heimasíðunni. Mér skilst td að hjúalögin séu stórfyndin... Sjáumst á laugardaginn í banastuði!
allramildilegast!!!
Hvað er nú týnt?
Ekkert týnt Helga mín. Eða jú ábyggilega margt týnt en ekkert sem ég veit um. Ég var bara að leita í lagasafninu þegar ég rakst á þetta.
Steinunn: Hjúalögin eru assgoti mikill bálkur. Spurning að taka valda kafla?
Ég vil þakka þér allramildilegast Anna mín fyrir að setja þessa allramildilegustu athugasemd hérna á þessa allramildilegustu síðu mína. Þetta er náttúrulega bara stórskrýtið orð!
Sjáumst á laugardaginn!!!
Heiðrún
Tær snilld, Frú Jónína! Vaktir áhuga minn á að skoða hjúalögin - gætu komið einn daginn að góðum notum (eða þú sérð bara um að skella inn svona völdum köflum ;) thihi)
hin ekki svo allramildilegasta
Skrifa ummæli