Fór til Akureyrar og afþýddi tvo frysta. Þar sem ég var bara í helgarleyfi en ekki sumarleyfi hafði ég ekki alveg tíma til að bíða eftir að klakinn bráðnaði og brúkaði því minn góða kínverska keppnisblásara í verkið. Hann virkaði fínt. Það er hins vegar skemmst frá því að segja að þegar ég ætlaði að blása á mér hárið í morgun var blásarinn gjörsamlega látinn/andaður/dáinn/dauður/óvirkur........!!!!!!!
Skrapp einnig á Fiskidaginn á Dalvík. Það var snilld. Ofsalega góður matur og ekki spillti fyrir að hann var alveg ókeypis. Af hverju er ekki meira um skyndibita í formi fisks á boðstólum? Allir á kafi í heilsurækt af ýmsum toga og þar ætti fiskurinn að koma sterkur inn. Að auki er mjög fljótlegt að elda hann, svo ég tali nú ekki um hvað hann er góður og fer vel í kroppinn.
mánudagur, ágúst 13, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Ææ ekki gott að blásarin dó:/ En já þetta vitum við að fiskur er góður matur og gæti ég haft hann nánast í öll mál það er endalaust hægt að gera gúmmelaði úr honum fisk á diskinn minn:) En það var gaman að sjá ykkur þarna öll á Dalvík ég var nú frekar seint á ferð þannig að Akureyri verður heimsótt síðar frænka hafðu það gott knús frá Brynju og co á skaganum:)
hárþurrkaður fiskur, það væri nú eitthvað sem ég væri til í að prófa
Ef þú verður uppvís að því að misnota hárþurrkuna mína. Eins og t.d. með því að nota hana í öðrum tilgangi en til þurrkunar á hári sem vex á höfði þínu. Þá verður lánssamningnum rift samstundis.
það er ekki að spyrja að því ... í smá helgarfríi og auðvita að vinna við þýðingar ;) annars var gaman að hitta þig á Fiskideginum .. sammála mætti vera meira um heilsu-fiksirétti
bíddu bíddu, ætlaðir þú ekki að fara að svara athugasemdunum?
Já, Brynja það er ekki hægt að koma alla leið norður án þess að kíkja við. Gaman að hitta ykkur á Dalvík
Anna: ástæðan fyrir því að ég gat ekki svarað athugasemdum fyrr er að ég hef verið að leita mér að nýjum blásara sem hentar bæði á fisk og hár.
Sóley: Ég passa mig bara að þú komist ekki að neinu. Anna lofaði að kjafta ekki frá.
Halla: Sömuleiðis vinan
Skrifa ummæli