miðvikudagur, september 05, 2007

Stafræn gæði

Stafræn gæði. Mestu mögulegu myndgæði. Hver sagði að það væri eitthvað samasemmerki á milli stafrænna mynda og gæða? Mig langar að hitta þann mann. Ég er nú orðin það gömul að ég man tímana tvenna. (Maður þarf reyndar ekkert að vera svo voðalega gamall til þess!) Man eftir því þegar sjónvarpið var að stíga sín fyrstu spor með öllum þeim byrjunarörðugleikum sem fylgja slíku. Þá voru myndgæðin oft af skornum skammti og algeng húsráð að slá í kassann og fikta í loftnetinu. Nú eru auglýstir betri tímar með blóm í haga; stafræn gæði. Jú, jú maður er auðvitað með nýjustu tækni og stafrænt sjónvarp í gegnum nettengingu en gæðin........... þau láta á sér standa. Ég hef ekki upplifað slík myndgæði frá því ég var barn!

ÉG VIL FÁ LOFTNETIÐ AFTUR !!!!!!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Blekking, blekking segi ég! Ég er nokkuð viss um að ég er yngsti maðurinn á jörðinni sem veit sannleikann. Mig grunar líka að Demolition Man eigi eftir að rætast.

Nafnlaus sagði...

Ég er sammála þér Jónína! ég veit ekki hvort það hefur eitthvað með aldur að gera, en ég minnist þess t.d. ekki að hafa þurft að horfa á slide show í sjónvarpinu áður eins og gerist oft núna. Nú eða stillimyndir - það kom þá bara stillimyndin afsakið hlé og maður vissi að það var verið að gera við, en í dag er bara stillimynd í marga daga - og engin afsökunarbeiðni!! Áfram gamli tíminn!!

Hildur sagði...

Ekki er ég svo gömul þó ég muni eftir "gamla tímanum". Ef snjókoma kom á skjáinn og hljóðið fór, þá var pabbi bara sendur upp á þak til þess að hræra ögn í loftnetinu á meðan maður kallaði til hans út um gluggann "fínt" "versnar" "stopp". Eftir smá tilstand var myndin orðin góð.
En á stafrænni 21. öldinni getur maður ekki annað gert en að slökkva á sjónvarpinu vilji maður losna við "ógæðin".