fimmtudagur, október 25, 2007

Aumingjaskapur


Þegar fíflunum fjölgar í kringum þig þarftu að líta í eigin barm. Þetta veit ég og þess vegna lít ég í eigin barm og finn þar einhvern hugsjúkan aumingja. Ég veit það líka að maður má ekki rífa sjálfan sig niður og á að líta á björtu hliðarnar og hafa trú á sjálfum sér. Maður á einnig að reyna að halda á lofti öllu því sem maður hefur áorkað og gert vel en reyna að dvelja ekki við mistökin. Þetta veit ég allt saman en mikið rosalega er stundum erfitt að fara eftir þessu.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Elsku Jónína mín!
Mikið er þetta rétt hjá þér - maður má ekki staðnæma við mistökin heldur stara á það sem hefur tekist vel hjá manni :) sem ég veit að er alveg heill hellingur hjér þér :) og þú getur nú bara byrjað að horfa á hann Dreng ...;) Annars vildi ég nú bara senda þér baráttukveðjur norður yfir heiðar :) og endilega vertu í bandi, darling :) knús ***

ps. það virkar oft að fara í pollý-önnu leik :) (þeir sem eru komnir af krúttkynslóðinni hljóta að muna eftir henni ;))

Nafnlaus sagði...

Svo er nú líka hægt að hugsa sem svo, mikið er ég heppin að vera svona fullkomin og lánsöm. Að eiga yndislega fjölskyldu og ótrúlega góða og skemmtilega vini. Hvað er hægt að fara fram á meira.
Maður er það sem maður hugsar og því verður öll hugsun að vera jákvæð enda auðveldara það tilveruna. Svo þarf bara að muna að allt er hægt tekur bara stundum smá tíma að finna út hvernig á að gera hlutina.
Baráttukveðja

Nafnlaus sagði...

Þakka ykkur fyrir vinkonur. Jú Halla ég held reyndar að ég sé sérfræðingur í Pollýönnu, enda af þessari kynslóð sem skapaði krúttin;) Það koma þó þessi augnablik sem maður gleymir sér andartak og blæs úr sér á bloggið!
Sendi baráttukveðjur til ykkar beggja suður yfir heiðar!

Nafnlaus sagði...

Elsku frænka mín, það sagði engin að lífið væri auðvelt! Ég mæli nú með að þú kíkir bara á bloggið mitt og lesir það um það sem þig vantar innblástur í, í pítslunum undir til umhugsunar!
Þú ert og munt alltaf verða algjör snillingur í alla staði! það er ekki að ástæðulausu sem þú ert ein að mínum fyrirmyndum, útgeilsun þín og karakter er engu lík og ekki skemmir fyrir hversu klár og fljót til svara þú ert og aldrei ertu lengi að vera til staðar þegar maður þarf á að halda!
Og kjarkur þinn og dugnaður er mikill!
Og ég held að þú þurfir ekki annað en að horfa á hann son þinn og sjá hversu vel hann er gefinn og ekki kom það á sjálfu sér;)

Jæja nóg af væmni, haltu áfram að vera þú!!

Þín frænka Stína
p.s. viltu svo fara að koma í nudd, skal lofa þér að það gerir mikið fyrir þig!
þúsund knús og kossar....

Nafnlaus sagði...

Ha hvaða mistök? Við gerum aldrei mistök, við förum bara aðeins öðru vísi að en allir hinir. Þú ert snillingur og hana nú!

Kveðja,
Klói Crane

Nafnlaus sagði...

Takk frænka og vinkona!
Nú er mál að taka upp léttara hjal. Verð að reyna að fá andann yfir mig í nýtt og jákvætt blogg!