mánudagur, október 29, 2007

Góðir gestir

Gestkvæmt hefur verið hér í gamla húsinu um helgina. Þóra Lilja og Rúnar komu í heimsókn á laugardagskvöld og við kjöftuðum frá okkur allt vit fram á nótt. Drifum okkur samt út á lífið seint og um síðir og skemmtum okkur konunglega fram undir morgun. Í gær kom svo Þóra með dóttur sína og nöfnu mína Ingibjörgu Marínu og við fengum okkur göngutúr í góða veðrinu. Rúnar og Dagur voru hins vegar uppteknir við eitthvað boltaspark í sjónvarpinu.
Gengum vítt og breitt um bæinn, skoðuðum í búðarglugga, fengum okkur pylsur, könnuðum húsagerðarlist tuttugustu aldarinnar og björguðum ungum stríðsmanni. Sá var á flótta undan óvinaher sem meðal annars var með boga og örvar að vopni. Ekki dvaldi hann þó lengi undir okkar verndarvæng, bara svona rétt á meðan hann varpaði öndinni augnablik áður en hann hljóp af stað aftur með óvinaherinn á hælunum, geislasverð á lofti og raddböndin þaninn eins og sönnum stríðsmanni sæmir.
Í gærkveldi kom svo Reynir Atli afmælisdrengur, borðaði hjá okkur og fór í bíó með Dreng. Hann gisti svo í nótt á leið sinni suður yfir heiðar eftir vikudvöl á nesinu Langa.
Nú þarf ég að fara að skipta mér af Dreng í eldhúsinu því Þóra og Rúnar eru að koma í kvöldmat.

E.s. Atvinnuviðtöl eru leiðinleg;
"Hvar sérðu þig eftir fimm ár?" Sko ég er engin völva!!!!
"Hvernig telur þú að menntun þín og starfsreynsla nýtist í þessu starfi?" Bíddu! Er ég ekki að sækja um þetta starf af því ég tel að starfsreynsla mín og menntun nýtist í akkurat þetta?!!!
"Hvað heldur þú að meðmælendur segi vera þína veikleika eða styrkleika?" Hvurn andskotann veit ég um það?!!!!!!

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ertu í alvöru spurð svona spurninga í atvinnuviðtölum?
Ég held að fólk sem spyr svona spurninga sé ekki alveg með fæturna á jörðinni.
Ég vona (mín vegna - og þín ) að þetta sé bara eitthvað sem manni sé sagt að hafa í huga í viðtölum en svo þegar í viðtalið er komið þá hitti maður venjulegt fólk - með venjulegar spurningar - ekki einhvern með lista sem útbúinn var í mannauðskúrsi í HR.

Jónína Ingibjörg sagði...

Nei Kollý mín. Maður er nefnilega spurður svona spurninga... því miður. Mig minnir að ég hafi einmitt á einhverjum tímapunkti sagt bara; "Æ það veit ég ekki!"

Nafnlaus sagði...

omg... ég fæ bara í magann - og langar ekkert í atvinnuviðtöl!!! Af hverju er enginn barasta búin/n að bjóða okkur vinnu ;) án atvinnuviðtals :);)thihi

bkv. úr hlíðum Kópavogs... og gangi þér vel að skrifa, skvís :)

Jónína Ingibjörg sagði...

Veistu það Halla... ég bara skil það ekki! Eins og við erum nú frábærar!
Gangi þér vel sömuleiðis!

Nafnlaus sagði...

Ég er akkúrat að ganga í gegnum atvinnuviðtöl núna og hef bara ekki fengið þessar "flottu" spurningar :) humm, kannski ég sé bara ekki að sækja um nógu bitastæð störf hehe... annars er ég að sækja um e-d sem tengist menntum minni á engan hátt... hlýtur að vera málið :)


knús Þóra frænka

Nafnlaus sagði...

Mamma mig langar í geislasverð!

Jónína Ingibjörg sagði...

Þóra: Gangi þér vel í þessari leit og ég bara vona að þú sleppir við allar asnalegar spurningar ;)

Sóley: Þú færð ekkert helvítis geislasverð fyrr en þú ert að minnsta kosti búin með ritgerðina! Farðu að skrifa og það strax!

Nafnlaus sagði...

Ég ætla rétt að vona að þú hafir svarað þessum miður gáfulegu spurningum akkúrat svona! Væri ég Boss, hefði ég ráðið þig á staðnum. Meira andsk... kjaftæðið á þessum síðustu og verstu og hana nú!
Kv. Heiðrún