Mikil veðurblíða hefur verið hér í Eyjafirðinum í dag. Þar sem ég sat úti á svölum með kaffibolla og ..... já kaffibolla og naut útsýnisins fór hitamælirinn í 22 gráður. Í skugga var reyndar aðeins um 5 gráðu hiti en lognið var þvílíkt að ég var að kafna úr hita. Ég hafði vitanlega farið í flíspeysunni út þar sem það er jú komið haust. Svona eiga allir haustdagar að vera!
Í gærkveldi tókum við litla fjölskyldan upp Pictionary spilið og fengum Bryndísi Líneyjar og Þórðardóttur með okkur í leikinn. Við Drengur vorum saman í liði á móti Hildi og Bryndísi. Þær byrjuðu á að stinga okkur af og ég var farin að halda að þær stunduðu einhvers konar leynidulmálssamskipti sín á milli. Svo kom að því að við mæðgin fórum að njóta okkar og hægt og bítandi náðum við í skottið á þeim. Það er skemmst frá því að segja að við sigruðum með miklum naumindum á lokasprettinum eftir spennandi viðureign á lokareitnum.
Við Drengur komum okkur upp nokkrum staðalteikningum, svo sem eins og Bjarna Ármannssyni. En í sumum tilfellum ríkir ákveðin sameiginlegur skilningur á túlkun fyrirbæra. Alveg merkilegt það.
mánudagur, október 08, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Hvernig teiknar maður Bjarna Ármanns?????
Það er svona Óli prik með gleraugu og strik á ákveðinn hátt sem tákna hár :)
hvernig teiknar maður þá bjarna harðarson? en það er ótrúlegt hvað sameiginlegur skilningur á sumum hlutum kemur manni langt í piksjónerí, mér gengur til dæmis aldrei betur en þegar ég spila með einni æskuvinkonu minni, við erum ósigrandi!!!
Velkomin aftur!
---
/0-0\
| - |
\ o /
Bjarni Harðarson
Skrifa ummæli