Ég nenni ekki að blogga. Spurning að hætta því bara?
Sóley Sigmarsdóttir dreif mig í Laufskálarétt um helgina. Vorum í réttinni á laugardag í yndislegu veðri. Við urðum vitni að því að Geir Jón er friðarins maður þó hann væri augsýnilega í fríi þessa helgi. Það var virkilega skemmtilegt að fylgjast með mönnum og hrossum, borða hákarl og njóta íslenska haustsins eins og það gerist best. Um kvöldið var svo ball í reiðhöllinni. Geirmundur var vitanlega við stjórnvölinn og Bjöggi kíkti við til að hvetja salinn í söng. Að auki skilst mér að hljómsveitin Von hafi stigið á stokk. Dönsuðum af okkur skóna og skemmtum okkur prýðilega. Fórum samt einar heim, aldrei slíku vant.
Sunnudagurinn var dulítið erfiður sökum þreytu en Helga í Lindabæ lét ekki sitt eftir liggja í veitingunum og enginn fór svangur þaðan.
Kíkti á Kaupfélagsmanninn á Króknum áður en ég brunaði í Eyjafjörðinn aftur. Hann var líka þreyttur einhverra hluta vegna.
Er búin að henda inn nokkrum atvinnuumsóknum. Hlakka til að vera hafnað því það er svo gott.
Lifið heil
þriðjudagur, október 02, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Það er gott að sjá að þú ert ekkert nema jákvæðnin þessa dagana.
það sem ekki drepur mann það styrkir mann sagði einhver vitringurinn svo smá höfnun´vegna atvinnu er nú ekki málið.
Frábært að heyra að þið hafið drifið ykkur í Laufskálarétt og enn betra að þið skemmtuð ykkur vel! Það drýpur af þér jákvæðnin í kringum umsóknirnar .... hehe ... en ég efa ekki annað en jákvæðnin eigi eftir að skila sér með svörunum !! ... knús og sjáumst í næstu viku :)
Oh mig langaði að mæta í réttirnar. Aðallega samt á ballið, ég var skíthrædd við hestana í fyrra ...
Gangi þér vel í atvinnuleit :-)
já, höfnun er einstök tilfinning, öfunda þig geðveikt!
Já það er dásamlegt að láta hafna sér. Fékk einmitt fyrstu höfnunina mína í dag. Sit í sæluvímu í heitum reit og nýt hennar í botn.
Nafnlaus er vinasamlegast beðinn að gera grein fyrir sér. Ég átta mig ekki hver þetta getur verið:s
Halla: Ég er ekki viss um að við sjáumst í næstu viku þar sem ég ætla að reyna að tala við fallega manninn í síma :) Sjáumst þó örugglega einhvern tímann, ekki satt?
Matthildur! Skammastu þín. Það var mjög gaman á ballinu. Þakka samt góðar óskir.
Anna! Það er ljótt að öfunda fólk! En þú mátt það samt þar sem ég veit að þú átt ekki eftir að lenda í þessu nema það séu einhverjir hálfvitar þarna úti:)
Sóley mín, við vitum nú alveg hverju þessi höfnun sætir. Það er þetta með eiginmanninn :)
Skrifa ummæli