Nú ætlar Íslensk erfðagreining að fara að selja mér erfðaupplýsingar um sjálfa mig. Ég var ofsalega jákvæð gagnvart gagnagrunni á heilbrigðissviði. Vil gera allt sem í mínu valdi stendur til að finna lækningu og lausnir á sjúkdómum. Hef tekið þátt í nokkrum rannsóknum í sjálfboðavinnu svo Kári kallinn geti fundið lækningu á einhverjum sjúkdómum. Þetta hefur mér þótt sjálfsagt framlag til vísindanna í allra þágu. En nú ætlar Kári kallinn að fara að selja mér upplýsingar um sjálfa mig!
Hann segir að það sé engin hætta á að tryggingafélagið mitt eða vinnuveitendur geti komist í þessar upplýsingar. Hvernig í veröldinni ætlar hann að tryggja það? Hvernig í veröldinni ætlar hann að tryggja það að einhver með sömu erfðaefni og ég og þar af leiðandi sömu tilhneigingu til sjúkdóma, selji hreinlega tryggingafélaginu mínu eða vinnuveitanda upplýsingar um mína erfðaþætti?
miðvikudagur, nóvember 21, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
9 ummæli:
Já, þetta er ekkert annað en helvítis hneyksli!
Það verður einhvern vegin að hala inn peninga - gengið lágt og svona...kannski að þeir sem keyptu bréf á ofurverði hér um árið, verði jafn ginkeyptir fyrir þessu.
Iss tökum ekki þátt í svona kjaftaði erum ekki til sölu eða hvað!!!knús kv frá skaganum:)
Hvað heldurðu að markaðsverðið á þessum upplýsingum verði Jónína?
ég er svo sammála þér.. algjör skandall
Væri það ekki bara fínt? Þá myndu allir komast að því að þú værir frænka Jóns Ásgeirs og tríta þig eins og drotningu? eða hvað...
Jónína mín, fyrir það fyrsta þá er engin með nærri námunda lík gen og þú. Þú ert einstök !
En já.... á öllu má nú reyna að græða ;)En er ekki bara málið að reyna að útvega sér þessar upplýsingar ókeypis, með því hreynlega bara að fylgjast með því hvernig heilsufar foreldra okkar, afa okkar og ömmu hefur verið og BINGÓ ..... við ættum allaveganna að geta sagt okkur að minnstakosti e-hvað af þessum kvillum sem þau hafa fengið, ættum við á hættu að fá í náinni framtíð..... sko ! Kári hvað ????
Fyrirgefðu en var ekki búið að loka þig frá umheiminum? Sofnaði fangavörðurinn á verðinum? Er allt að fara úr sokkaböndunum þarna á Akureyir?
Mig langar til að svara athugasemdum ykkur, hverjum fyrir sig en fangavörðurinn gaf mér bara leyfi til að svara öllum í einu í stuttu máli.
Takk fyrir athugasemdirnar kæru vinir!
Skrifa ummæli