Nýr fangavörður hefur tekið til starfa hér í fræðasetrinu. Mun hans helsta starf verða að halda vísindamanninum að störfum inni í fangaklefanum auk þess að reka hann í reglulega viðringu og hreyfingu. Við óskum Dreng velfarnaðar í hinu nýja starfi.
(Vona bara að hann komist ekki að því að ég hafi bloggað. Hann verður brjálaður!)
fimmtudagur, nóvember 15, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
Frelsi hugans er það sem skiptir máli!
Mig vantar svona fangavörð, en er samt komin með fangaklefann, þannig að kannski er það byrjunin.
jæja þetta hefur greinilega svo sannarlega snúist við hjá þér og nú er bara spurningin hvort hann verði jafn harður og þú varst við hann á uppvaxtarárunum, mér líst vel á þessa þróun ;) og sérstaklega þetta með hreyfinguna, sp hvort hann þurfi ekki að draga mömmu gömlu með sér í ræktina og í boltan, hahahhaha , sæi það alveg fyrir mér :)
Ástarþakkir svo fyrir yndislegt matarboð síðustu helgi, það var bara ljúft að eyða kvöldinu með ykkur og alltaf líður mér eins og heima þegar ég er hjá ykkur. alveg eins og í gamla daga á þórshöfn fyrir utan að litli drengurinn er farin að rífa meiri kjaft núna ;)
þúsund kossar og knús til ykkar og haltu áfram að vera dugleg....
Ég gæti alveg hugsað mér þetta starf. Ég gæti þjónað þér, hjálpað þér að finna heimildir, bakað, nuddað á þér axlirnar o.fl.o.fl. Það væri hægt að gera út á þetta. Að halda rigerðarskrifurum við efnið.
Gangi þér sem allra allra best elsku Jónína og allir aðrir sem sitja sveittir við ritgerðarsmíði.
Kær kveðja, Þorbjörg
Ég segi nú ekki annað en gangi honum vel - hann velur sé ekki auðveldasta starfið - en ef starfið er árangursríkt þá eru það góð laun að lokum,
Gangi þér allt í haginn Nína mín, þetta er alveg að hafast!
Er þetta það sem er kallað gæsluvarðhald?
Eru engir heimsóknartímar?
Skrifa ummæli