föstudagur, nóvember 30, 2007

Rannsóknarsetur

Dyngja mín í höllinni er vel búin til rannsókna og hér situr maður lon og don og reynir að vera gáfulegur. Það gengur nú svona og svona......



Rúmið gegnir mikilvægu hlutverki, aðallega sem gagnageymsla og heilaendurvinnslustöð:

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mér finnst þú sitja full nálægt sjónvarpinu Jónína - þetta getur skemmt í þér augun !

Jónína Ingibjörg sagði...

Þetta væri hárrétt hjá þér Kollý ef ekki væri fyrir þá staðreynd að ekkert loftnet er tengt við sjónvarpið og rafhlöðurnar í fjarstýringunni eru tómar. Sjónvarpið er þarna sem sagt aðeins til að taka pláss :s .... því miður :(

Nafnlaus sagði...

Jónína maður á ekki að vinna í rúminu, ja nema maður sé gleðikona!

Nafnlaus sagði...

Snotrasti skeiðvöllur. Minnir um margt á Vindheimamela.

kv. J

Nafnlaus sagði...

glæsileg aðstaða sem fangelsismálastofnunin Hafnarstræti 86 útvegar

Nafnlaus sagði...

Nína mín! Mér sýnist dyngja þín litlum breytingum hafa tekið síðan í Brimborg í gær eða fyrradag (eða eitthvað)nema þá voru tölvur ekki almenn heimilistæki og ég sé ekki öskubakkann!

Nafnlaus sagði...

Klárlega best útbúna rannsóknarsetur landsins

Nafnlaus sagði...

Þetta er glæsilegt setur! Kemur Drengur svo með mat á bakka? Ég var að ljúka við mína fjálglegu ritgerð (30 bls) í mannauðsstjórnun og skila henni föstudaginn 7. desember. Brátt get ég um frjálst höfuð strokið. Gangi þér allt í haginn Nína mín. Steinunn I
PS
hvaða kjaftæði er þetta með lykilorð til að commenta, þú ert nú ekki orðin lögfræðingur...?

Jónína Ingibjörg sagði...

Sóley: Ég er glöð kona, svona yfirleitt!

J: Örugglega besti skeiðvöllur í heimi, alla vega rosalega gott að sofa á honum, hef ekki enn prófað að sofa á Vindheimamelum!

Drengur: Þetta er fyrirmyndarstofnun!

Birna: Tengingin við Brimborg er ekki svo galin. Það voru góðir tímar sérstaklega fyrir öskubakkann sem nú er bara búið að úthýsa!

Nína: Já það gætu margir öfundað mig af aðstöðunni. Bara að hún væri nóg:s

Steinunn: Það vildi ég að þú gætir sent mér gáfurnar þínar og rithæfileika... þú getur það alveg, er það ekki? Fyrst þú ert hætt að nota þá í bili?
Annars veit ég ekkert um þetta kommentadrasl. Hefur eitthvað breyst í þeim efnum?