Ég man ekki hvernig það byrjaði, en allt í einu vorum við Drengur Óla komin á kaf í Íslendingabók. Hann stóð við bakið á mér, í bókstaflegri merkingu, og týndi til nöfn á frægu fólki sem ég sló inn jafnóðum. Voðalega er ég eitthvað óskyld fræga fólkinu! Við fundum bara ekki neitt!
En viti menn. Loksins kom að því;
Jón Ásgeir Jóhannesson
er náskyldur mér! Mikið agalega er gott að vita af því...... eða er það ekki?
11 ummæli:
Ég vona að þú sért að lesa Jón Ásgeir!
Er þér boðið í brúðkaupið?
Já ég er að lesa
kv. Jón Ásgeir
Sóley: Nei! Mér er nefnilega ekki boðið! Það hljóta nú bara að vera einhver mistök. Boðskortið hlýtur bara að vera rétt ókomið.
Jón Ásgeir: Bjóddu mér í brúðkaupið!
Hvernig ertu skyld honum?? smá forvitni..... híhíhí
kv. Þóra frænka
Þóra: Ef ég er skyld honum þá hlýtur þú að vera það líka. Ekki satt?
Þú ert án nokkurs vafa komin af skrítnu fólki, elsku vínkona.
Kveðja BÖB
Ég er ekki frá því að eyrnasneplarnir á ykkur séu eins. Þú getur kannski notað það sem kennimerki þann 17. n.k.
BÖB: Jáhá! Vissu fleiri en þögðu þó!
Kollý: Það hljóta nú bara allir að sjá það þegar ég mæti að þar fer kona af góðum ættum sem þarf ekki boðskort.
ég fer oft inn á íslendingabók og er enn ekki búin að finna minn fræga ættingja, möhö...
Já en Anna mín. Þú þarft engan frægan ættingja, þú hefur mig!
Skrifa ummæli