laugardagur, nóvember 24, 2007

Ussssss.....

... ekki hafa hátt. Fangavörðurinn gæti heyrt í ykkur. Ég er að stelast til að blogga!
Til þess að verða lögfræðingur þarf maður að gerast fræðimaður fyrst.


Þetta er svolítið skrýtið þar sem fæstir lögfræðingar starfa sem fræðimenn. Nú er ég sem sagt í óða önn að berjast við að finna fræðimanninn í mér. Það gengur ekki vel þar sem hann er að öllum líkindum ekki fyrir hendi. Ég held ég sé vinnudýr en ekki fræðimaður. Núna langar mig mest til þess að ná mér í spýtu og nagla og smíða eitthvað. Eða baka fyrir jólin. Eða hvað sem er annað en að sitja í þessum stól og skrifa.

Mig langar að verða heimavinnandi húsmóðir. Vitið þið um einhvern karl á mínum aldri sem vantar húsmóður? Hann þarf að vera fallegur, góður, skemmtilegur og eiga nógu mikið af peningum til að hafa efni á mér sem heimavinnandi húsmóður. Já, hver sagði að þetta væri auðvelt?



Svona fara nú fræðastörfin með mann. Maður er orðinn ruglaður!

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þú getur kíkt á myndir af þú veist hverjum inni á síðunni hennar Elmu, láttu mig vita hvernig þér lýst á gripinn og svo get ég látið þig hafa símann hjá honum

Nafnlaus sagði...

já eða gripina, annar er í skírnaralbúminu og hinn í 5-9 vikna alb.

Jónína Ingibjörg sagði...

Anna mín: Þessi sem er í 5-9 vikna albúminu er bara efnilegur!
Ég legg til að þú reddir samverustund, t.d. að kvöldi þess 4. eða 5. janúar næstkomandi.

Nafnlaus sagði...

En spennandi, ég fer beint í albúmið, fæ vonandi að fylgjast með framvindu mála.
Kær kveðja að sunnan

Nafnlaus sagði...

Ég fer strax í það að leita. Er nefnilega enginn fræðimaður heldur.

Nafnlaus sagði...

Já, með auknum valmöguleikum ykkar kvennanna misstuði það eina sem þið höfðuð fram yfir okkur karlanna, að geta verið heimavinnandi húsmæður! Djöfulli væri ég til í það maður... shit!