
Ég er andvaka.
Andvaka er skrýtið orð. Hefði að óreyndu haldið að það þýddi að vera sofandi. Að vaka þýðir að vera ekki sofandi og þá hlýtur AND-vaka að þýða að vera sofandi. Einhvern tímann hefur einhver misskilið eitthvað. Eða hvað?
Nú væri sniðugt að vera að vinna vinnuna sína en ég var alltof syfjuð og þreytt til þess þannig að ég fór að sofa. Þá var ég ekki lengur syfjuð, en þreytt var ég og er enn. Datt í hug að ég yrði kannski syfjuð af að blogga pínulítið.
Þetta verður ef til vill endasleppt blogg þar sem ég sofna kannski bara ofan á tölvuna í miðjum klíðum. Vakna svo með hálsríg, slefandi ofan í lyklaborðið.
Ég verð samt að segja ykkur að é...............................................................
9 ummæli:
...hvernig er hálsrígurinn... ;) og þoldi lyklaborðið slefið ;) thihi! Annars vona ég að þú hafir náð að sofna mjög fljótlega eftir þessa bloggfærslu og sofið "eins og ungabarn" í alla nótt :) ....
ps. GÓÐA FERÐ !!!!!!!!!!
Skemmtu þér vel í útlandinu og sjáumst vonandi áður en þú missir aftur aftur lit eða eins og sagt er, verður AND-LIT
ohhh það er svoooo pirrandi að vera andvaka (spurning að senda vísindavefnum spurningu um þetta orð ;)
ennnn ertu að fara til útlanda???
vona að þér gangi nú vel að læra og ég sendi þér fullt af heilasellum til að klára þetta með stæl : )
þúsund kossar og knús: *
þín uppáhaldsfrænka.....
þú ert svo fyndin jónína að það er engu lagi líkt, skil ekkert í þér að fara ekki í keppnina um fyndnasta mann íslands...
Gleðileg jól Jónína mín og hafðu það gott. Kær kveðja Maj-Britt og fam
Gleðileg jól mín kæra og sjáumst hressar þegar þú kemur aftur á klakann.
Gleðileg jól, nýtt ár og allt það :-)
Vonandi var gott og gaman hjá ykkur í sólinni, ég hugsaði oftar en einu sinni til þín í rigningunni og rokinu hérna ...
Gleðilegt árið, elsku Jónína og ég vona að þú hafir haft það gott í útlandinu (og gerir það kannski enn ;) .... takk fyrir allt gamlt og gott og vonandi sjáumst við fljótlega :) k&k
Gleðilegt nýtt ár gullið mitt og takk fyrir öll þau gömlu....
(vissirðu að þau eru farin að skipta tugum??) Megi svefnlausum nóttum fækka og gleði og gæfa hrúgast að þér og þínum.
Skrifa ummæli