fimmtudagur, desember 06, 2007

Áhugavert fólk

HRÚTUR 21. mars - 19. apríl
Það fylgir því gæfa þegar fólk hittist í fyrsta sinn. Reyndu að láta það gerast. Jafnvel þótt þér finnist þú ekki félagslyndur núna, heilsaðu þá upp á þá sem þér þykja áhugaverðir.

Skil ekki alveg. Hvernig á ég að vita hver er áhugaverður án þess að hitta viðkomandi?
Ókunnugt fólk hefur vissulega hringt í mig að undanförnu en ekkert af því var vitundar ögn áhugavert!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ljón: Þeim mun meira sem þú seilist eftir heiminum öllum, þeim mun hamingjusamari verður þú. Fólk tekur eftir hversu vel þér líður og vill líða eins.

Þetta er mín spá í dag, ég kannast ekkert við þetta .... þetta minnir mig frekar á tiltekna kynslóð karlmanna á Íslandi sem eiga Porche jeppa eða Range Rover ..
Jónína, sá ókunnugi sem hringir hefur almennt engan persónulegan áhuga á þér, það kannast ég við, yfirleitt vélræn könnun eða banki að bjóða þér einhver stórkostleg punkta- eða krónukjör. Gleymdu þessu og haltu áfram með ritgerðina.
Baráttukveðjur að sunnan.