miðvikudagur, janúar 16, 2008

Mitt rétta sjálf

Stimplaði rækilega inn mitt rétta sjálf í vinnunni í morgun.
Vaknaði ekki í morgun að öllu leyti. Líkaminn vaknaði og hann baðaði mig og snyrti, borðaði morgunmatinn en EKKERT KAFFI!
Svo kom kaffitíminn.
Fékk mér kaffi og mjólk út í. Tókst í leiðinni að hella slatta af mjólk á höndina á samstarfsmanni. Þar sem ekkert sæti var laust við þetta borð þurfti ég að fara með kaffibollann og leggja hann frá mér á næsta borð. Á því borði voru kertastjakar (tóku um það bil 0,3% af borðfletinum) og mér tókst af minni alkunnu snilld að leggja blessaðan kaffibollann hálfvegis ofan á kertastjaka. Þetta olli því að kaffibollinn valt á hliðina og u.þ.b. 30 cl. af mjólkurblönduðu kaffi láku niður á borðið, þaðan niður á stól og af stólnum niður á gólf.



Í fyrramálið fæ ég mér kaffi áður en ég legg af stað í vinnu!

13 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jónína! Hvernig komst þú út úr húsi án þess að vera búin að fá kaffi? Ég bara sit og klóra mér í hausnum yfir þessu. Ég ætla rétt að vona að þú hafir útskýrt fyrir þeim að þú værir aðkomumaður.

Nafnlaus sagði...

móment ársins. Svona á að kynna sig á nýjum vinnustað og ef samstarfsmaðurinn kvartar benntu honum þá bara á að sem betur fer var þetta mjólk en ekki heitt svart kaffi...
Nína

Nafnlaus sagði...

Þetta var mjög skemmtileg kynning, ég get staðfest það

Nafnlaus sagði...

hehehe..... Jónína mín :) Gott að sjá að þú ert komin aftur á Klakann og farinn að blogga af krafti. Mér finnst alltaf svo skemmtilegt að lesa bloggið þitt enda ertu skemmtileg kona með afbrigðum :)
P.s. fyrst þú ert að tala um kaffi þá veistu að ef þú átt erindi í höfuðborgina einhverntíman á næstunni, þá átt þú kaffiboð í Arnarkletti 30, 310 Borgarnesi.

Nafnlaus sagði...

Þú ert yndisleg ! Besta fólkið eru þeir sem hafa húmor fyrir sjálfum sér.

Nafnlaus sagði...

ég segi nú bara .. eins gott að ég drekki ekki kaffi ;) thihi

knús og frábært blogg eins og alltaf :D:D:D:D Halla Björg

Nafnlaus sagði...

Þú ert alveg frábær, áttu ekki skilið að fá kaffi í rúmið eftir svona lífsreynslu.

Nafnlaus sagði...

Sko, elsku frænka mín að þá les ég ekki annað úr þessari raun þinni að þetta hafi verið heiðarleg tilraun til að reyna að fá þig til að hætta að drekka kaffi!!!
Ég viðurkenni það alveg að ég hefði alveg viljað vera fluga á veggi og horft á þennan morgun hjá þér og ég vona svo sannarlega að restin að deginum hafi gengið betur!!
Ennn taktu þessu eins og ég las úr þessu og hættu í kaffinu enda veit ég að þú veist hversu slæm áhrif það hefur á líkmalega og andlega líðan í miklu magni....
þín uppáhaldsfrænka;)

Nafnlaus sagði...

Sé þetta alveg fyrir mér. Þetta hefði engum tekist nema þér... hehehe!!! Þú ert stórkostleg!!!

Nafnlaus sagði...

Jónína! Þetta er samviska þín sem talar. Bloggaðu!

Nafnlaus sagði...

Gott að það er einhver stöðugleiki í veröldinni!
Ekki líst mér á það ef þú værir orðin einhver pinnahæla, ofurslikk mjálmandi "look-at-me" týpa!
- En ein spurning; Hvernig stóð á því að þú fórst kaffilaus út, yfirleitt???

Nafnlaus sagði...

Þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör. Að fara út úr húsi kaffilaus! Ég skil það ekki sjálf. Enda hefur það ekki komið fyrir síðan.

Samstarfsmaðurinn þorði náttúrulega ekkert að kvarta þar sem hann vissi að ég er jú aðkomu!

Ég kíki í kaffi Guðný við fyrsta tækifæri. Ég veit þú kippir þér ekkert upp við það þó kaffið fari kannski eitthvað út fyrir bollann.

Annars þakka ég bara þeim sem lásu og höfðu fyrir því að setja hér inn athugasemd.

Ég lofa svo að blogga áður en Þorrinn gengur sitt skeið... eða eitthvað...

Nafnlaus sagði...

það var ég sem skrifaði þarna 17. og skildi ekki eftir nafn...sorry..geri það aldrei aftur
kv.Gunna Stína