fimmtudagur, janúar 10, 2008

Nýtt líf

Tímamótadagur í dag.

Fyrsti vinnudagurinn á nýjum vettvangi hjá KPMG á Akureyri.
Mætti með hnút í maganum en fór heim með bros á vör. Þetta var fínt. Enginn beit mig eða neitt!

Tenerife var fín. Loftslagið átti mjög vel við mig. Er að hugsa um að draga Ísland þarna suður eftir.

Mugison er í sjónvarpinu núna. Mikið rosalega er hann góður! Ég fæ gæsahúð.

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Oh, ég er svo glöð að sjá þig/lesa þig aftur - sé þig alveg fyrir mér brúna og sæta, mætt í nýju vinnuna í hvítum fötum með bleikan varalit til að undirstrika brúnkuna - eða þannig.
Til haminjgu með starfið og að vera aftur komin í bloggheima.
kv.Kollý

Nafnlaus sagði...

Já.... frábært að sjá að þú ert loksins farin að blogga aftur ! Til lukku með nýju vinnuna.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með nýju vinnuna og jámm ég skal hjálpa þér að láta draga þetta sker okkar suður í sól og sangriu

Nína Björg

Nafnlaus sagði...

Gleðilegt ár og gaman að kynnast þér.
Kveðja Gunna Stína

Nafnlaus sagði...

já Fínt já sæll... minn besti vinur vinnur einnig hjá þessu firma en reyndar í reykjavík ... til lukku með þetta og gaman og gott að heyra að þér líkaði vel... í sólinn..kveðja frændinn í slippnum ...

Nafnlaus sagði...

Bið að heisla Steru beru...

Nafnlaus sagði...

Ó hvað það er gaman að hafa þig hérna hjá mér í vinnunni. Það er sko nýtt og betra líf!

Nafnlaus sagði...

Gleðilegt ár og til hamingju með "nýja lífið" ;) frábært að heyra hvað þú hafðir það gott í sólinni (áttir þetta SVO skilið!) og enn og aftur til hamingju með vinnuna :) bara frábært! Hlakka til að hitta á þig ... vonandi fyrir ML-hittinginn í haust ;) thihi
bkv. Halla Björg
ps. líst vel á þessa hugmynd að draga Ísland örlítið meira suður á bóginn ;) ...

ps.