Þau hin fyrstu að vetur sá kemur er kallaður er Fimbulvetur. Þá drífur snær úr öllum áttum. Frost eru þá mikil og vindar hvassir. Ekki nýtur sólar. Þeir vetur fara þrír saman og ekki sumar milli.
En áður ganga svo aðrir þrír vetur að þá er um alla veröld orustur miklar.
Þá drepast bræður fyrir ágirni sakir, og enginn þyrmir föður eða syni í manndrápum eða sifjasliti.
Svo segir í Völuspá:
Bræður munu berjast og að bönum verðast, munu systrungar sifjum spilla. Hart er með höldum, hórdómur mikill, skeggjöld, skálmöld, skildir klofnir, vindöld, vargöld áður veröld steypist."
6 ummæli:
Mín bara kaldhæðin í dag!
hehe... mér líkar þessi kaldhæðni :):):)
Drengsson segir:
"Mikil tíðindi eru þaðan að segja og mörg.
Þau hin fyrstu að vetur sá kemur er kallaður er Fimbulvetur. Þá drífur snær úr öllum áttum. Frost eru þá mikil og vindar hvassir. Ekki nýtur sólar. Þeir vetur fara þrír saman og ekki sumar milli.
En áður ganga svo aðrir þrír vetur að þá er um alla veröld orustur miklar.
Þá drepast bræður fyrir ágirni sakir, og enginn þyrmir föður eða syni í manndrápum eða sifjasliti.
Svo segir í Völuspá:
Bræður munu berjast
og að bönum verðast,
munu systrungar
sifjum spilla.
Hart er með höldum,
hórdómur mikill,
skeggjöld, skálmöld,
skildir klofnir,
vindöld, vargöld
áður veröld steypist."
Ég segi pass! Get ekki toppað athugasemdina á undan.
Heiðrún
Falleg mynd
Gunna systir
Hmm... eru þetta nokkuð gróðurhús á myndinni?
Skrifa ummæli