sunnudagur, janúar 13, 2008

Helgi

Ég trúi ekki að helgin sé liðin. Ég held það hljóti að vera færri tímar í sólarhring um helgar en virka daga.
Af hverju ætli tíminn sé alltaf fljótari að líða eftir því sem maður eldist?
Ég man þegar ég var barn hvað tíminn leið miklu hægar. Það kom fyrir að hann leið hratt, en ég man samt minnst eftir því. Ég man miklu betur þegar tíminn mjakaðist varla á aðfangadag. Og hversu föstudagurinn langi var virkilega langur.



Er reyndar ekki viss um að börn í dag upplifi þetta svona. Nú er hægt að gera alla skapaða hluti á föstudaginn langa, svo sem eins og að hanga í tölvu og jafnvel hitta vinina. Ég man ekki eftir að hafa hitt vinina á svo helgum degi. Einhvern veginn var það svo að maður var bara með fjölskyldunni og enginn kom að spyrja eftir manni: "Viltu vera memm?"
Það var ekkert barnaefni í sjónvarpinu á föstudaginn langa. Engir tölvuleikir. Enginn veraldarvefur. Bara alveg svakalega langur og heilagur dagur í sparifötunum.
Þetta er svona í minningunni en ekki endilega víst að þetta hafi verið alveg svona í raunveruleikanum.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ójá... þó ég sé nokkrum árum yngri... þá er þetta svona líka í minningunni hjá mér! Ég man að ég fékk alltaf 3 páskaegg og það bjargaði alveg föstudeginum langa ;) því þá fékk ég að opna eitt og svo auðvita spila... ég spilaði við ömmu og spilaði ... reyndar mátti það ekki í "gamla daga" ... en víst það var ég þá spilaði amma ;) thihi

annars þarf ég að heyra í þér fljótlega... þar sem við erum orðnar samstarfskonur...eða hvað þetta nú heitir ;)

bkv. hbevans

Nafnlaus sagði...

Sammála tíminn flýgur áfram!!
En gaman að hitta þig í dag.
Kveðja Gunna Stína

Nafnlaus sagði...

Algjörlega sammála - átti nokkrum sinnum afmæli á þessum helga degi. Dagana notaði ég til að skamma mömmu fyrir að hafa átt mig á þessum árstíma!

Nafnlaus sagði...

Sæl og blessuð
Til hamingju með nýju vinnuna
Í dag banka krakkar ekki uppá og segja ,,viltu vera memm" heldur segja þeir ,,geturðu leikt" - hversu rétt eða rangt sem það nú er.
Kærlig hilsen HVÞ

Nafnlaus sagði...

Man ekkert sérstaklega eftir föstudeginum langa umfram aðra helgidaga. Hugsa að þetta hafi bara verið fínn dagur hjá einrænu einkabarni.