mánudagur, febrúar 04, 2008

Aldur og fyrri störf

Ferlegt með öll þessi aðgangsorð sem maður þarf orðið að nota.
Hvernig í veröldinni á maður að muna þetta allt saman?
Enda man ég þau alls ekki öll.
Komst til dæmis ekki inn á bloggið mitt af því ég var búin að gleyma aðgangsorðinu. Þetta stafar auðvitað einnig af þeim möguleika að geta látið tölvuna muna aðgangsorð því þegar maður gerir það þá man maður það náttúrulega ekkert þegar maður svo þarf á að halda. Það er eins með símanúmer. Einu sinni mundi ég öll símanúmer sem ég þurfti að nota nokkuð reglulega. Ennþá man ég númer sem aldrei hafa verið sett inn í minni símans en ég man engin af þeim númerum sem eru til komin eftir gemsavæðingu.

Annars er bara allt fínt að frétta......... eða lítið að frétta... það gerist ekki margt í mínu lífi... sem er hvort tveggja í senn, gott og slæmt.

Góðar stundir

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég hef það fyrir reglu að nota bara 3 mismunandi aðgangsorð á allt draslið þannig að ég kemst þá inn í síðasta lagi í þriðju tilraun. Vona að þetta hjálpi eitthvað mín kæra hehe.

Jónína Ingibjörg sagði...

Já, ég veit. Ég nota líka ákveðin aðgangsorð en stundum eru þau ekki samþykkt. Svo eru líka þau tilfelli þar sem manni er úthlutað aðgangsorði......
Æ ég gæti örugglega skipulagt þetta betur hjá mér, en....

Nafnlaus sagði...

Já, þetta er fyrir löngu orðið allt of mikið. En sem betur fer er venjulegur mannsheili fær um að muna, að því er virðist, óktamarkað magn gagnslausra upplýsinga.

Nafnlaus sagði...

Þetta er nú allt í lagi á meðan þú manst hvað þú heitir :)

Mattý sagði...

Ég nota sömu tækni og Sóley þangað til ég fæ úthlutað aðgangsorði, ég þoli það ekki. Getur t.d. einhver munað aðgangsorðið inn á réttarríkið??? Ekki séns ...

Nafnlaus sagði...

Það gerist ýmislegt í þínu lífi, þess er skemmst að minnast þegar þú helltir kaffinu yfir nýju vinnufélagana og húsnæðið allt. Það er ljómandi upphaf á glæstum ferli. Sumum finnst nýr starfsvetvangur vera merkilegur atburður, en það er álitamál.
Aðgangsorðin eru örugglega aukaatriði.

Nafnlaus sagði...

fékk mér nýtt símkort um daginn og þar með fuku öll símanúmerin út af GSM símanum. Ákvað að gera tilraun með því að setja númerin EKKI inn í símann aftur, og athuga hvort ég gæti munað þau eins og ég gerði fyrir gsm væðingu. Þitt númer er frekar erfitt, man það ekki en þekki það samt þegar ég sé það, held ég - alla vega gangi mér vel;)
EN rosalega var gaman að sjá þig, og alla hina sófalingana (en þig samt mest). Láttu mig vita hvenær þú kemur næst svo við getum nú hist ennþá betur.