miðvikudagur, febrúar 20, 2008

Dómsdagur

Það er allt að fara fjandans til.
Loðnuveiðum hætt. Þorskkvótinn minnkaður. Bankarnir farnir að ráðgera uppsagnir. Í dag heyrði ég jafnvel orðið gjaldþrot nefnt í sömu setningu og Kaupþing! Ekki held ég nú að menn hafi verið að spá bankanum gjaldþroti en bara það að nefna þetta orð í sömu setningu bendir til að farið sé að hitna í himnaríki.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já - ekki líst mér á það. Er að hugsa um að vera bara lengur í skóla - eða nei...ég er alveg komin með uppí kok af því. Það fer að verða fátt um fína drætti á vinnumarkaði fyrir nýútskrifaða. Ætli ég endi ekki sem gangbrautavörður suður með sjó, nú mér hugnast líka alveg að bera út póstinn - fín hreyfing og svona.

Jónína Ingibjörg sagði...

Eitt er víst, Kollý, þú verður góð í hverju sem þú tekur þér fyrir hendur.
Ég er líka alveg viss um að þú fáir vinnu. Ætlarðu sem sagt að búa á Reykjanesinu?

Nafnlaus sagði...

Já, nú fer virkilega að koma að timburmönnum í íslenska þjófelaginu eftir allt of langt neyslu og eyðslufyllerí!!!
Ekki þorir maður að segja hvort kreppa í einhverri mynd sé að koma eða alvarlegar viðvaranir að við verðum að fara að taka okkur á og hætta þessari óþarfa eyðslu og fyllerí og fara að forgangsraða rétt!!!