fimmtudagur, febrúar 14, 2008

Nú skal segja

nú skal segja
hvernig líf mitt hefur verið:
Fór í bæinn, hitti vini
og svo snerist ég bara í hring.

Hvar er hinn mikli andi, bloggandinn?
Jæja þetta verður bara leiðinlegt núna.
Það verður að hafa það.

Fór sem sagt til höfuðborgarinnar og í höfuðstöðvarnar til að kynna mér menn og málefni. Hitti þar fyrir Höllu Björgu, Jónas, Guðrúnu og síðast en ekki síst Þorbjörgu sem fór með mig á heilsustað í hádeginu. Mjög góður dagur í alla staði.

Eftir barning í veðurofsanum á föstudagseftirmiðdegi í umferðarbrjálæði borgarinnar var gott að hitta ættingja, borða góðan mat og eiga notalega kvöldstund með Taggart á skjánum.

Laugardagurinn fór í búðarráp með Gunnu systur eftir ótæpilegt konfektát á Hrafnistu.

Um kvöldmatarleytið hitti ég svo fleiri Bifrestinga í mat áður en skundað var í fertugsafmæli Kallsins. Já Sigurður Björnsson er orðinn fertugur og ekki nóg með það! Hann notaði tækifærið og gifti sig, enda ekki seinna vænna. Hin nýbökuðu hjón voru lukkuleg og allir skemmtu sér hið besta fram á nótt.

Sunnudagsmorgunn var erfiður. Gunna bauð í dögurð sem ekki var af skornum skammti. Þar áttum við systkinin (eða stór partur af okkur), makar þeirra ásamt mömmu, góða stund við át og kjaftagang.

Góð helgi að baki og önnur á leiðinni.

Lifið heil.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

dögurð já, ekki slæmt orð það! Takk fyrir mig á laugardagskvöldið, það var svaka gaman að hitta þig og hina, og já næsta vísitering verður nú að vera til stórfjölskyldunnar, nafna þín bíður í ofvæni eftir að hitta þig!

Jónína Ingibjörg sagði...

Orðið er dögurður, karlkynsorð og var í gamla daga notaður um morgunverð, skilst mér.

Annars var dásamlegt að hitta ykkur hjónin og ég lofa að koma ekki til borgarinnar aftur án þess að vísitera stórfjölskylduna. Nafna mín verður nú að fá að kynnast mér, ekki satt?

Nafnlaus sagði...

Jónína!.Ég veit ekki hvernig ég á að segja þér þetta, en ég held að þú verðir að fá að vita sannleikann. Taggart er dauður!

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir síðast! Hlakka til að fá þig hingað aftur - og þá í lengri tíma :) ....

Nafnlaus sagði...

Taggart lifir í hjörtum miðaldra húsmæðra.

En á ekki að blogga um þessa helgi núna?

Nafnlaus sagði...

orðið er snjótittlingur, snjó-tippi múhahaha múhahaha