laugardagur, október 25, 2008

Dýrt kveðið

Fékk eftirfarandi vísu senda með tölvupósti og nú langar mig að vita hver samdi:

Á lítilli eyju við heimsskautahjara
býr heimakær, vansvefta, auðtrúa þjóð.
Hún leit upp til ráðsmanna loðinna svara
sem loforðum öfugt í kok hennar tróð.

Þeir níddust á trausti og trúgirni okkar
– táldrógu sannlega helvítis til.
Og allt sem þeir gerðu, þeir gordrullusokkar
gerðu þeir flottræflum sínum í vil.

En frelsið er háðara boðum og bönnum
en bláeygðir frjálshugar ímynda sér.
Þjóð mín var notuð af nýríkum mönnum
og nauðgað af útrásarvíkingaher.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nú í framtíðinni eru engir höfundar. Þetta kemur af internetinu.