fimmtudagur, maí 03, 2007

Tíminn

Tíminn líður hratt á gervihnattaöld
hraðar sérhvern dag
hraðar sérhvert kvöld
Ertu stundum hugsandi......tralalallallalllalllalala

Það er bæði gott og slæmt hversu tíminn flýgur áfram. Gott af því þá þarf maður sjaldan að bíða lengi eftir skemmtilegheitum ýmis konar. Slæmt af því þá hefur maður aldrei nægan tíma til að gera allt sem maður þarf að gera í þessu lífi.

Tíminn líður því hraðar sem maður eldist. Nú er svo komið að mér finnst tíminn hreinlega hlaupa frá mér og stundum finnst mér eins og ég hafi hreinlega misst út dag eða tvo.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hverju orði sannara....
Gunna.

Nafnlaus sagði...

omg, já!... gætir ekki hafa orðað þetta betur. Mér fannst alveg vera föstudagur í gær... og hann er strax aftur á morgun :oooooo

Nafnlaus sagði...

Já, hann líður mjög hratt.